miðvikudagur, 30. júlí 2008
Next we...
Það er fátt sem fer framhjá þessum snilla :)
fimmtudagur, 24. júlí 2008
Prins
Afmælisveislan var annars mjög fín, nánast enginn grátur og stráksi fékk fullt fullt af gjöfum. Tæplega fjörutíu manns voru í veislunni, svo það er spurning hversu margir verða þegar drengurinn fermist. Afmælistertan var Súperman-terta og hann fékk líka slíkan búning frá okkur . Reyndar var ManU gallinn fyrir valinu til að vera í í veislunni, enda verðandi atvinnumaður þarna á ferð!
Margrét, litla systir Ingimar var líka rosa hress, er hætt að vera mannafæla og hún og Vaka voru hinar bestu vinkonur. Vaka las fyrir hana og svo skottaðist hún um í prinsessupilsi, hin mesta dama þar á ferð :)
þriðjudagur, 22. júlí 2008
Faðir rekinn
Fer fólk virkilega til Kamtjatka
mánudagur, 21. júlí 2008
Ný heimasíða
Niðurstöður
sunnudagur, 6. júlí 2008
Allt að róast...
þriðjudagur, 24. júní 2008
Frá sömu framleiðendum
Athyglisverður trailer þetta :)
sunnudagur, 22. júní 2008
Allt að gerast
Ruth benti mér á þessa frábæru síðu fyrir þá sem vilja geta slegið um sig með fræknum frösum http://www.atrixnet.com/bs-generator.html
Sem dæmi má nefna setninguna:
"authoritatively deliver granular niche markets" hvað þetta hins vegar merkir, veit ég ekki :)
James Bond-heilkennið
Önnur frétt sem mig hefur langað til að fjalla um er mótleikur Dana við reykingabanninu sem sett var á á síðusta ári. Það er "den elektriske cigaret" eða »e-cigs«. Hún gefur ekki frá sér reyk en í hana eru settar fyllingar með nikótíni. Þær eru því ekki bannaðar vegna þess að þessar sígarettur eru flokkaðar sem "livsstilsprodukt". Danirnir alltaf góðir :)
Þriðja fréttin var að Svarthöfði, síðasti göngumaður í "skrúðgöngu" presta á prestaþingi hafi verið á vegum Vantrúar. Hann tók sig mjög vel út í göngunni og ég held bara að biskup ætti að bjóða honum næst að vera með. Lífgaði heldur betur upp á þessa annars drungalegu göngu (segir mikið til um gönguna fyrst svarthöfði lífgar upp á hlutina.
mánudagur, 16. júní 2008
laugardagur, 14. júní 2008
Muna brosið :)
Annars erum við V að fara á Mugison og fleiri núna, með bros á vör (óæft). Ég óska ykkur gleðilegrar helgar, ég er að fara að skemmta mér á tónleikum.
þriðjudagur, 10. júní 2008
Akureyri
föstudagur, 23. maí 2008
Á meðal jafningja
Þannig er mál með vexti að nú er listahátíð í Reykjavík, og eitt af listaverkunum eru myndir af flestöllum börnum á landsbyggðinni milli 3. og 6. ára. Mamma fór því að rýna í vegginn með myndunum, sem er á horninu á Lækjargötu og Austurstræti, til þess að sjá hvort okkar maður leynist ekki þar, og jú, vitir menn, þarna er hann og það í tvíriti :) Auðvitað ekki að undra þar sem hann er jú fallegasta barn í heimi (fjögurra að verða fimm). Hérna er mynd af veggnum, nú er spurning hvort þú sérð stráksa:

mánudagur, 5. maí 2008
miðvikudagur, 23. apríl 2008
Nýja Jórvík
Gleðilegt sumar öll sömul!!
föstudagur, 11. apríl 2008
Mín heittelskaða yndislegasta kærasta

átti að sjálfsögðu mynd af Rollunni minni, þ.e. Patrolnum. Hvað gerði ég án hennar? Auðvitað hefði ég átt að spyrja hana bara strax... ohh... ég get stundum verið svo eitthvað utan við mig.

Takk elsku besta Vaka dúllan mín!!! Set inn eina frábæra mynd af þér í þakklætisskyni!!!
ps... Þetta bloggaði "mín heittelskaða" sjálf, ég bað hana bara að setja inn mynd af Pattanum
miðvikudagur, 9. apríl 2008
Ég er búinn að selja jeppann minn :(
Þjóðarsorg hefur því verið lýst yfir frá og með deginum í dag!
þriðjudagur, 1. apríl 2008
Umhverfisdagar við HÍ - Hefur þú grænan grun?
Dagskrá Umhverfisdaga í Háskóla Íslands er eftirleiðis:
1. apríl:
11:30
Opnir básar á Háskólatorgi - umhverfisvænar vörur og lausnir
16:40
Sýning heimildamyndarinnar „We Feed the World“ (96 mín – enskur texti) og umræður í lok myndar um efni hennar.
Stofa HT-105, Háskólatorgi.
2. apríl:
12:00
Hádegisfyrirlestrar Umhverfisdaga: Kaupa fyrst, henda svo?
Tilraunir á áhrifum verðs á kauphegðun íslenskra neytenda. - Valdimar Sigurðsson, lektor við viðskiptadeild HR
Úrgangsmálin á höfuðborgarsvæðinu: Hver og einn skiptir máli í góðri meðhöndlun með gott hráefni. - Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri gæða- og þjónustusviðs Sorpu
Stofa HT-104, Háskólatorgi.
20:30
Umhverfis-Quiz - Spurningameistari er Katrín Jakobsdóttir.
Staður: Highlander, Lækjargötu 10.
3. apríl:
21:00
Uppskeruhátíð Umhverfisdaga á Grand Rokk!
Staður: Grand Rokk, Smiðjustíg 6.
Ég hvet alla til að mæta og leggja þessu málefni lið. Þeir sem standa að þessum dögum eru:
GAIA - félag meistaranema í umhverfis- og auðlindafræði
Stúdentaráð HÍ
Stofnun Sæmundarfróða
fimmtudagur, 27. mars 2008
"Skilja við ömmu og afa auk pabba" - Frétt af mbl.is í dag
Minni tengsl við föðurættina má m.a. sjá af því að þeir sem reynt höfðu skilnað töluðu sjaldnar við föður sinn og hans foreldra en hin ungmennin gerðu, leituðu síður til þeirra og voru ólíklegri til að telja þau til nánustu aðstandenda. Þetta skýrir Sigrún með sterkri stöðu móðurinnar í lífi barnsins, sem rækti meira tengslin við sitt fólk en tengdafólk. Það mynstur verði svo skýrara við skilnað.
Aðspurð um hvernig megi skýra það að meiri þátttaka feðra í barnauppeldi hafi ekki skilað jafnari ábyrgð, segir Sigrún niðurstöðurnar hafa komið á óvart en mögulega liggi þetta í ólíkum hlutverkum foreldranna. Þótt pabbinn sé mikið með börnin sé hann oft að leika við þau en móðirin taki að sér ábyrgð og stjórn.
Pabbinn ósýnilegur
Ein af þeim spurningum sem lagðar voru fyrir ungmennin sem reynt höfðu skilnað foreldra var hvort þau teldu þar einhverjum um að kenna. Af þeim sem það gerðu nefndi skýr meirihluti, 87%, föðurinn sem sökudólg. Til samanburðar kenndu aðeins 3% móðurinni um.Aðspurð um hver hefði sagt þeim frá skilnaðinum sagði þriðjungur foreldrana hafa gert það í sameiningu og fjórðungur að móðirin hefði gert það. Í handriti að skýrslunni, sem 24 stundir hafa undir höndum, er bent á að tengsl geti verið á milli þess og að föðurnum sé kennt um skilnaðinn. „Draga má þá ályktun að ósýnileiki föður í sjálfu skilnaðarferlinu ýti undir hugmyndir barna um hann sem „sökudólg“, ekki síst þar sem móðir ber jafnframt mesta ábyrgð og tekur frekar að sér útskýringar.“
Þá kemur fram að þótt fráskildu foreldrarnir hefðu flestir hafið aðra sambúð þegar könnunin var gerð voru feðurnir líklegri til að skipta oftar um maka og eignast börn í seinni samböndum. Telja höfundar að þetta geti veikt stöðu föðurins í huga barnsins enn frekar.
Þarf meiri fræðslu um skilnaði
Til þess að draga úr neikvæðum áhrifum skilnaðar á börn, leggja skýrsluhöfundar til að efld verði fjölskyldufræðsla fyrir verðandi foreldra og að þeir foreldrar sem sækja um skilnað fái sérstaka fræðslu um hvernig best sé að standa að málum svo að skilnaðurinn hafi sem minnst áhrif á börnin.Að lokum er lagt til að þeir foreldrar sem hvað erfiðast eiga með að leysa úr sínum málum fái til þess aðstoð og að börn þeirra fái sérstakan stuðning.
Í hnotskurn
Skýrslan „Aðlögun og líðan ungmenna í kjölfar skilnaðar foreldra,“ er eftir Sigrúnu Júlíusdóttur, Jóhönnu Rósu Arnardóttur og Guðlaugu Magnúsdóttur. Hún verður gefin út á næstu dögum af Rannsóknasetri í barna- og fjölskylduvernd í HÍ. Notaðir voru spurningalistar og var úrtakið 1200 framhaldsskólanemar. Svarhlutfall var 71,2%.miðvikudagur, 26. mars 2008
Síðbúið páskablogg :)
Ég vona að þið hafið haft það sem allra best mín kæru, ég set bráðum inn myndir úr ferðinni um Snæfellsnesið, sem virðist mér vera óendalegt ljósmyndaefni :)
mánudagur, 17. mars 2008
Spam-komment
miðvikudagur, 12. mars 2008
mánudagur, 10. mars 2008
laugardagur, 1. mars 2008
Úti á landi
Vatnsberi: Losaðu þig við alla óþarfa sviðsmuni. Þeim mun hæfileikaríkari sem þú ert, þeim mun minna aukadót hefurðu þörf fyrir. Þjálfaðu það sem skiptir máli.
Ég veit nú ekki nákvæmlega hvað þetta þýðir - en tek þessari ábendingu með brosi á vör :).
Ég er annars staddur á Ólafsvík - Snæfellsnesi. Vaka er hérna á læknavakt yfir helgina og það er vægast sagt búið að vera nóg að gera hjá henni. Ég vona nú samt að hún fái frið til þess að slappa aðeins af - svo hún verði nú ekki of þreytt í næstu viku!
Eigiði svo góðan bjórdag elskurnar mínar :) og áframhaldandi góða helgi!
þriðjudagur, 26. febrúar 2008
Háskólinn á Hólum í Hjaltadal
mánudagur, 25. febrúar 2008
Hreindýr
Ég fékk ekki úthlutað hreindýri, en er númer 70 (kvóti 68 kýr á svæðinu) á svæði 5 (Svæði 5. Fjarðabyggð, þ.e. Eskifjörður, Norðfjörður og Reyðarfjörður, einnig sjá mynd) sem þýðir að ef tveir hætta við að taka sín dýr býðst mér að fara. Nú er því bara spurningin hvort ég tek því boði (ef það býðst)?

föstudagur, 22. febrúar 2008
Hylling
miðvikudagur, 20. febrúar 2008
Hugleiðingar
Í umræðum um „vísindaritið“ National Geographic (N.G) í síðasta tíma vöknuðu hjá mér nokkrar spurningar, þar á meðal hvort N. G. sé vísindatímarit (í eiginlegum skilningi þess orðs) og svo í kjölfarið mörkin milli þess að birta vísindagreinar og greinar sem frekar hafa skemmtana- og eða fræðigildi fyrir lesandann án þess að textinn sé tormeltur og illskiljanlegur fyrir hinn almenn a lesanda. Þar sem markhópur útgefenda N. G. er menntuð millistétt Ameríkana mætti ætla að hægt væri að fæða þá með öðru en léttsöðnum greinum um allt hið góða í heiminum og yfirburði hvíta mannsins (Ameríkana).
Þegar rit eru gefin út í heiminum eru þau flokkuð eftir markhópnum með því að bjóða upp á greinar sem henta og höfða til hvers flokks lesenda. Blöð ætluð verkfræðingum fjalla um viðfangsefni verkfræðinga, svo byggingar brúa og blöð ætluð mannfræðingum fjalla um umfjöllunarefni mannfræðinga, t.d. vettvangsrannsóknir gerðar um heim allan. Oft á tíðum eru þessi rit mjög sérhæfð og þýðir þá lítið fyrir hinn almenna borgara, sem ekki hefur bakgrunn eða aðra þekkingu á viðfangsefnum sérritanna, að ætla að setjast niður og fá eitthvað út úr þeim lestri. Hvað er þá til ráða til þess að ná til hins almenna lesanda, og fræða, sem ekki less þessi áður nefndu sérfræðirit.
N. G. er eitt elsta „vísindarit“ sem gefið er út í heiminum í dag, ritið á rætur sínar að rekja til loka 18. aldar þegar The National Geographic Society var stofnað árið 1888. Stofnendur félagsins voru úr elítu þess tíma og blaðið var ætlað hinni menntuðu millistétt til að byrja með en ekki ólærðum lýðnum. Ritið var því rit sérfræðinga. Enn þann dag í dag er blaðið ætlað sama markhópi en það sem hefur breyst er að blaðið höfðar til allra, en þá breytingu má rekja til þess að Alexander Graham Bell tók við stjórn blaðsins 1898.
„Bell seemed much more attuned to the Society‘s mission to disperse geographic knowledge rather than to promote new research, and he believed that people would read geography only if it were light and entertaining” (Fjölrit bls. 16)
Breytinguna má einnig rekja til Gilbert Hovey Grosvenor.
„As a result of Grosvenor‘s innovations, the Geographic style became mor similar to that of other popular monthlies, marked by „a realism full of pep and information““ (Fjölrit bls. 16)
Byggt á þessari tilvitnun hef ég, þegar rætt er um N. G., orðið vísindarit í gæsalöppum. Í mínum huga er N. G. nefnilega ekkert vísindarit, nema þá vísindarit fyrir almenning þar sem valdar eru greinar sem ætla má að hann skilji og vilji lesa.
Önnur lögmál gilda fyrir vísindarit ætluð almenningi en þau sem ætluð eru vísindamönnum (sérfræðingsrit). Vísindarit fyrir almenning þurfa ekki að vera bökkuð upp af rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið á þeim sviðum sem ritin fjalla um, greinarnar eru byggðar (oftast) á stuttum vettvangsrannsóknum eða upplifun greinarhöfundar. Þetta form bíður upp á skekkju þegar efnið er svo matreitt fyrir lesandann, líkt og þekkt er í mannfræðinni, ef greinarhöfundur passar ekki upp á að blanda ekki eigin skoðun á viðfangsefninu við hlutlausa umfjöllun sína sem lesandinn á heimtu á. Útgáfa á ritum eins og N. G. er því ekki auðveld og þurfa þeir því líklega að hlusta á mikla gagnrýni á skrif sín og passa sig sérstaklega á því að vera hlutlausir í umfjöllun sinni - miðað við umræðuna í síðasta tíma virðist þeim ekki alltaf takast það!