Minni tengsl við föðurættina má m.a. sjá af því að þeir sem reynt höfðu skilnað töluðu sjaldnar við föður sinn og hans foreldra en hin ungmennin gerðu, leituðu síður til þeirra og voru ólíklegri til að telja þau til nánustu aðstandenda. Þetta skýrir Sigrún með sterkri stöðu móðurinnar í lífi barnsins, sem rækti meira tengslin við sitt fólk en tengdafólk. Það mynstur verði svo skýrara við skilnað.
Aðspurð um hvernig megi skýra það að meiri þátttaka feðra í barnauppeldi hafi ekki skilað jafnari ábyrgð, segir Sigrún niðurstöðurnar hafa komið á óvart en mögulega liggi þetta í ólíkum hlutverkum foreldranna. Þótt pabbinn sé mikið með börnin sé hann oft að leika við þau en móðirin taki að sér ábyrgð og stjórn.
Pabbinn ósýnilegur
Ein af þeim spurningum sem lagðar voru fyrir ungmennin sem reynt höfðu skilnað foreldra var hvort þau teldu þar einhverjum um að kenna. Af þeim sem það gerðu nefndi skýr meirihluti, 87%, föðurinn sem sökudólg. Til samanburðar kenndu aðeins 3% móðurinni um.Aðspurð um hver hefði sagt þeim frá skilnaðinum sagði þriðjungur foreldrana hafa gert það í sameiningu og fjórðungur að móðirin hefði gert það. Í handriti að skýrslunni, sem 24 stundir hafa undir höndum, er bent á að tengsl geti verið á milli þess og að föðurnum sé kennt um skilnaðinn. „Draga má þá ályktun að ósýnileiki föður í sjálfu skilnaðarferlinu ýti undir hugmyndir barna um hann sem „sökudólg“, ekki síst þar sem móðir ber jafnframt mesta ábyrgð og tekur frekar að sér útskýringar.“
Þá kemur fram að þótt fráskildu foreldrarnir hefðu flestir hafið aðra sambúð þegar könnunin var gerð voru feðurnir líklegri til að skipta oftar um maka og eignast börn í seinni samböndum. Telja höfundar að þetta geti veikt stöðu föðurins í huga barnsins enn frekar.
Þarf meiri fræðslu um skilnaði
Til þess að draga úr neikvæðum áhrifum skilnaðar á börn, leggja skýrsluhöfundar til að efld verði fjölskyldufræðsla fyrir verðandi foreldra og að þeir foreldrar sem sækja um skilnað fái sérstaka fræðslu um hvernig best sé að standa að málum svo að skilnaðurinn hafi sem minnst áhrif á börnin.Að lokum er lagt til að þeir foreldrar sem hvað erfiðast eiga með að leysa úr sínum málum fái til þess aðstoð og að börn þeirra fái sérstakan stuðning.
3 ummæli:
Þetta eru mjög sorglegar staðreyndir
vona að fólk átti sig á þessu og reyni að koma í veg fyrir svona, barnanna vegna of course.
Ég er einmitt með þetta blað sem klósettlesningu og las greinina um helgina. Mjög þörf. Fólk þarf skyldukúrs í barnauppeldi, en líklega enn frekar skyldukúrsinn "Skilnaður 101"...
Já kúrs í báðu ætti að vera skylda! Við breytum því þegar við komumst til valda ;) enda eru breytingarnar nauðsynlegar, barnanna vegna! Þeir fullorðnu skipta mig minna máli...
Skrifa ummæli