Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Étið nú á ykkur gat, drekkið eins og þið getið og njótið augnabliksins :)Ég biðst annars forláts á vöntun á jólakortum, enn eitt árið, en við Vaka erum að hugsa um að gera gangskör í þessum málum fyrir næstu jól.
An Alpha Male in an Ivory Tower

Nú heyrist ekki mikið í þeim sem hafa agíterað fyrir frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum! Íslenska sauðkindin er nú betri en engin. Borðum innlent!!!
Skuggarnir fara að lengjast en hreindýrin í óróanum mínum láta ekki deigan síga og hringsnúast þegar sólar nýtur við
Geitungarnir fóru að finna að endirinn var nærri og fóru því í hverja sjálfsmorðsárásina á fætur annarri í dauðagildruna mína. Hún kom alla vega í veg fyrir að þeir væru að angra okkur Vöku inni í íbúðinni okkar (sem er nota bene á 5. hæð)
Leifur (til vinstri á myndinni), mágur minn, komst með liði sínu Stjörnunni í undanúrslit í sínum flokki í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Þeir komust því miður ekki í úrslitin en greinilegt er að Stjarnan stendur vel að ungmennastarfi sínu!
Ein mynd verður að fylgja af prinsinum, frá því hann var hjá okkur síðast fyrir um mánuði síðan. Man nú ekki alveg hvað var í gangi en fjörið var alla vega mikið, líkt og alltaf þegar þessi elska kíkir í 101 Reykjavík :)
Haft hefur verið eftir henni að hún trúi ekki að lofslagsbreytingar séu af manna völdum!
