Þannig er mál með vexti að nú er listahátíð í Reykjavík, og eitt af listaverkunum eru myndir af flestöllum börnum á landsbyggðinni milli 3. og 6. ára. Mamma fór því að rýna í vegginn með myndunum, sem er á horninu á Lækjargötu og Austurstræti, til þess að sjá hvort okkar maður leynist ekki þar, og jú, vitir menn, þarna er hann og það í tvíriti :) Auðvitað ekki að undra þar sem hann er jú fallegasta barn í heimi (fjögurra að verða fimm). Hérna er mynd af veggnum, nú er spurning hvort þú sérð stráksa:

3 ummæli:
Auðvitað sér maður dúlluna! ...hann er klárlega fallegasta barnið ;)
Gott að sjá að hótanir virka!
þetta er svona "Hvar er Valli" mynd - Hvar er Ingimar :) Auðvitað langfallegasta barnið á þessum vegg og þó víðar væri leitað!
Þetta krútt er náttla einsog litli Óli þarna fyrir miðju í ljósblárri peysu með smá vott af besserwissersvip? Rúsína :)
Skrifa ummæli